Er unnin úr hreinni jójóba olíu og íslensku salti sem inniheldur náttúruleg andoxunarefni og fitusýrur með virku efnin (m.a. eicosanoic, oleic og palmitolic) A, B og E vítamín, selen, kopar, sink, króm, kísil og joð. Hann hefur því margþætt áhrif fyrir húðina og líkamann. Saltskrúbburinn er endurnærandi, djúpnærandi, bólgustillandi, örvar blóðrásina, fjarlægir dauðar húðfrumur og óhreinindi. Vinnur gegn appelsínuhúð og háræðaslitum. Húðin verður silkimjúk strax eftir fyrstu notkun.
Skrúbbið húðina með hringstrokum á blauta húð í sturtunni, láta standa í 5 mín. Skola svo af.
llmkjarnaolíur: Grapefruit, Lavender, Rose, Tea tree, Lemon.
Íslenskt sjávarsalt frá Norðursalti